Friðarfundur: Amnesty International
- When
- Where
- Reykjavík Art Museum Hafnarhús, Tryggvagata, Reykjavík, Reykjavik Open in Maps ↗
Details and tickets come from the organiser (reykjavik.gaycities.com). Check with them before you go. Facebook page ↗

Details and tickets come from the organiser (reykjavik.gaycities.com). Check with them before you go. Facebook page ↗

Á friðarfundi kvöldsins mun Bryndís Bjarnadóttir, herferðastjóri Íslandsdeildar Amnesty International fjalla um mannréttindahugtakið í víðu samhengi og mannréttindaverndina, eins og hún birtist í starfi Amnesty International. Amnesty International er alþjóðleg hreyfing fólks sem berst fyrir því að alþjóðlega viðurkennd mannréttindi séu virt og að allir njóti verndar þeirra. Hlutverk Amnesty International er að sinna rannsóknum og hvetja til aðgerða til þess að hindra og binda enda á alvarleg mannréttindabrot og krefjast réttlætis fyrir þá sem hafa mátt þola slík brot. Samtökin eiga upphaf sitt að rekja til ársins 1961 og starfa nú í rúmlega 160 löndum og landsvæðum með yfir átta milljónir félaga. Deildir Amnesty International má finna í öllum heimsálfum. Íslandsdeild Amnesty International var stofnuð 15. september árið 1974. Amnesty International er óháð öllum ríkisstjórnum, stjórnmálastefnum, efnahagslegum hagsmunum og trúarbrögðum. Í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi standa nú þrjár sýningar þar sem listamennirnir Yoko Ono, Erró og Richard Mosse takast á við stríðsátök og vonir um heimsfrið. Af þessu tilefni býður safnið ólíkum félagasamtökum og hópum sem standa vörð um frið og mannréttindi að kynna málstað sinn. Friðarfundirnir fara fram fimmtudagskvöldum í nóvember og inn í aðventuna í desember. Þeir fara fram á íslensku og eru öllum opnir án endurgjalds. Listasafnið og matstofa frú Laugu eru opin til kl 22:00 á fimmtudagskvöldum. Talks on Peace: Amnesty International The Reykjavik Art Museum - Hafnarhus currently hosts exhibitions focusing on war and peace. A diverse public program on the subject includes this series of talks from NGOs and other agents involved in the discourse on peace and humanitarian work. Thursdays in November and December they each present a subject of their choice. The talks are free of charge and take place in Icelandic.