About
Mannfræðinni er ekkert mannlegt óviðkomandi og loftslagsbreytingar af mannavöldum eru þar engin undantekning.
Alþjóðasamfélagið gerir reglulega ýmis konar samninga til að hægja á risaferlum sem virða engin landamæri og hafa áhrif á allt mannkyn, umhverfi þess og komandi kynslóðir svo langt sem augað eygir. Þeir vekja sumum von en aðrir sjá ekki neina grundvallarbreytingu á hegðun fólks almennt og að þeim læðist sá grunur að glötunin bíði ein. Á meðan sendinefndir ræða málin í skýjakljúfum alþjóðasamtaka í stórborgum heimsins ganga milljarðarnir til verka sinna dag hvern, mismeðvitaðir um hvað loftslagsbreytingar hafa í för með sér. Það er þó ljóst að nú þegar bitna afleiðingarnar meira á sumum en öðrum og
almenningur skilur æ betur að loftslagsbreytingar eru mannréttindamál ekki síður en umhverfismál.
Í þessum fyrirlestri mun Helga Ögmundardóttir lektor hjá Háskóla Íslands fara yfir rannsóknir og hugmyndir þeim tengdar sem mannfræðin hefur lagt til málanna á sviði loftslagsbreytinga.
Erindið fer fram í sal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 16. nóvember kl. 12:00 - 13:00.
Verið hjartanlega velkomin!
Nearby
- Three Frakkar Baldursgata 14
- Hotel Borg 11 Pósthússtræti
- Tapas Barinn Vesturgata 3b
- Geysir Bistro & Bar Aalstrti 2
- Fish Company Vesturgata 2a